Einn vinsælasti söngleikur allra tíma snýr aftur til landsins!

Söngleikurinn Kabarett er ódauðleg klassík sem fjallar á djarfan og ögrandi hátt um samfélag á heljarþröm.

Þjóðleikhúskjallarinn umbreytist í hinn magnaða Kit Kat klúbb
Verkið býður okkur í ferðalag tæplega 100 ár aftur í tímann inn á stórfjörugan og afar kynlegan skemmtistað í Berlín. Í næturhúminu blómstrar ástin, frelsið og listin en samtímis eykst ógn nasismans fyrir utan veggi klúbbsins dag frá degi. Sýningin fæst á ærslafullan hátt við lævíst eðli illskunar og viðbrögð okkar við henni.

Við hlökkum til að taka móti þér á skemmtilegasta klúbbi í heimi!

Opnar prufur!

Leikhús ókunnuga fólksins leitar að leikurum, söngvurum og dönsurum til að taka þátt í Söngleiknum Kabarett sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúskjallaranum í mars 2026.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2025

í samstarfi við

Byggt á leikriti eftir John van Druten &
Berlínarsögum Christopher Isherwoord

Íslensk þýðing: Karl Ágúst Úlfsson

Uppsetning:
Leikhús ókunnuga fólksins

Sýnt með leyfi The Nordiska Production

Listrænir stjórnendur

Leikstjórn
Bjartur Örn Bachmann

Sviðshreyfingar
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir

Dans
Sally Cowdin

Tónlistarstjórn
Fannar Sigurðsson
Þorsteinn Jónsson

Aðstoðarleikstjórn
Arndís María Ólafsdóttir

Dramatúrgía
Níels Thibaud Girerd

Búningar
Hulda Kristín Hauksdóttir

Leikmynd & leikmunir
Bryndís Magnúsdóttir
Melanie Ubaldo

Leikgervi
Kristjana Rós Sigurðardóttir

Lýsing
Jóhann Friðrik Ágústsson

Hljóðhönnun
Þórður Gunnar Þorvaldsson

Við sköpum