NÝTT LEIKFÉLAG!
Leikhús ókunnuga fólksins var stofnað vorið 2025 með það að markmiði að framleiða vandaðar sviðlistir og bjóða upp á ný og spennandi tækifæri fyrir metnaðarfullt listafólk.
Félagið er skipað hópi fólks með brennandi ástríðu fyrir leikhúsi og leggur sérstaka áherslu á að gera söngleikjaforminu hátt undir höfði.
Við trúum því að leikhúsið sé staður þar sem ókunnugt fólk úr ólíkum áttum sameinast með það fyrir augum að tengjast í gegnum sköpun. Þess vegna heitum við Leikhús ókunnuga fólksins.
Við hlökkum til að kynnast þér!
Við sköpum
Sviðslistir
Markmið félagsins er að skapa lifandi list af ástríðu og fagmennsku. Við veljum verk sem hafa sterka þýðingu fyrir okkur sem listafólk og tala til áhorfenda. Hjá okkur verða listrænar hugmyndir að veruleika í höndum fólks sem elskar að skapa.
Tengsl
Við byggjum tengsl milli ókunnugs fólks: milli flytjenda og áhorfenda og milli ólíkra listamanna. Við trúum á sameiningarmátt leikhússins og kraftinn sem býr í því að deila rými, tíma og sögu.
Tækifæri
Leikhús ókunnuga fólksins skapar tækifæri fyrir metnaðarfullt sviðslistafólk. Við opnum dyr fyrir fjölbreyttan hóp fólks á ólíkum aldri og með ólíkan bakgrunn.
Undirbúningur hafinn fyrir Söngleikinn Kabarett!
Teymið
-
Bjartur Örn Bachmann
LISTRÆNN STJÓRNANDI
-
Helena Hafsteinsdóttir
FRAMLEIÐSLUSTJÓRI
-
Arndís María Ólafsdóttir
VERKEFNASTJÓRI
-
Katrín Anna Karlsdóttir
MARKAÐS- OG KYNNINGARMÁL
-
Níels Thibaud Girerd
LISTRÆNN RÁÐUNAUTUR
-
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
SKIPULAGSSTJÓRI