Rafræn skráning í prufur fyrir Söngleikinn Kabarett.

Umsóknarfrestur er til og með 25. júní 2025

Lífið er kabarett!

Leikhús ókunnuga fólksins leitar að leikurum, söngvurum og dönsurum til að taka þátt í Söngleiknum Kabarett (eftir Mastoff, Ebb og Kander) sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúskjallaranum í mars 2026. Kjallaranum öllum verður umbreytt í hinn alræmda Kit Kat klúbb til að skapa ógleymanlega söngleikjaupplifun fyrir áhorfendur.

Sýningin er fyrsta uppsetning Leikhúss ókunnuga fólksins sem var stofnað í þeim tilgangi að setja upp framúrskarandi sýningar og skapa ný tækifæri í sviðslistasenunni á Íslandi. Um félagið

Prufur

Staðsetning:
Reykjavík, Þjóðleikhúsið, Dómhús - Lindargötu 2
Dagsetningar: 8., 10., og 14. júlí 2025

Æfingar og sýningar

Æfingastaður: Þjóðleikhúsið
Sýningastaður: Þjóðleikhúskjallarinn
Fyrra æfingatímabil
:
Október 2025
Seinna æfingatímabil:
Febrúar-mars 2026
Frumsýning: 20. mars 2026
Lokasýning: óákveðið
Tegund verkefnis:
Söngleikur / samstarfsverkefni
Þóknun: Láglaunað / hlutdeild af miðasölutekjum og umfram tekjur. (Með von um hærri þóknun þegar félagið fær styrkveitingar á tímabilinu)

Meðal þess sem við bjóðum upp á

  • Tækifæri til leika í einum skemmtilegasta og vinsælasta söngleik allra tíma ásamt því að koma fram í Þjóðleikhúsinu.

  • Skapandi samvinnu og sambönd við aðra listamenn og listræna stjórnendur.

  • Æfinga- og sýningaferli á fagmannlegum skala og í listrænu umhverfi.

  • Portrett-myndir teknar af Þjóðleikhúsinu.

  • Myndir og myndbönd af æfingaferli og sýningum til eigin notkunar.

  • Hlutdeild af miðasölutekjum. Sjá launastefnu.

Prufað verður fyrir eftirfarandi hlutverk:

Leikhlutverk

  • *Aðeins er prufað fyrir understudy (varaflytjenda) fyrir þetta hlutverk.

    • Lífsglaður og leyndardómsfullur kynnir á Kit Kat - Klúbbnum. Heillandi og dáleiðandi flytjandi sem getur bæði tælt og skelft áhorfendur. Er óhræddur við nánd of fjölbreytta kyntjáningu.

    • Þarf að vera með sterka sviðsframkomu, geta leikið, sungið (sumt á þýsku), hreyft sig vel og geta komið fram í ögrandi/erotískri sviðsetningu.

    • Aldur: 25–50 ára

    • Raddsvið: Tenór

  • *Aðeins er prufað fyrir understudy (varaflytjenda) fyrir þetta hlutverk.

    • Bresk kabarettsöngkona á Kit Kat-klúbbnum. Sérkennileg og duttlungafull. Á erfitt með að horfast í augu við myrkari hliðar lífsins og á slæma reynslu af samböndum.

    • Þarf að geta leikið, sungið og dansað vel. Verður að geta unnið með nánd á sviði og ögrandi sviðsetningu/kóreógrafíu.

    • Aldur: 20–35 ára

    • Raddsvið: Sópran

    • Bandarískur rithöfundur og enskukennari sem ferðast til Berlínar. Í gegnum gegnum verkið tekst hann á við flókið samband við sitt kynferðislega sjálf, pólitísk viðhorf og sköpunarþörfina.

    • Þarf að geta leikið og sungið vel, vera lipur á sviði og hreyfa sig nokkuð vel, ásamt því að geta unnið með nánd á sviði.

    • Aldur: 25–35 ára

    • Raddsvið: Baritónn

    • Leigusali sem leigir herbergi til Cliff og annarra. Harðlynd einsetukona sem er búin að sætta sig við sín hlutskipti í lífinu, en þráir innst inni félagsskap. Verður ástfangin af Herr Schultz.

    • Þarf að geta hreyft sig á sviði (léttur dans eins og vals), leikið og sungið vel. Þarf að geta unnið með nánd á sviði.

    • Hreim: Þýskur

    • Raddsvið: Alt / Mezzo

    • Ávaxtasali sem er hrifinn af Fräulein Schneider. Hreinn, saklaus og elskulegur. Gyðingur sem er „ómeðvitaður“ um ástandið í samfélaginu.

    • Þarf að geta leikið og sungið vel, hreyft sig á sviði og dansa létt (t.d. vals) og geta unnið með nánd á sviði.

    • Aldur: 50-70

    • Raddsvið: Baritónn

    • Vændiskona sem býr í húsi Fräulein Schneider. Djörf, skörp og kaldhæðin. Þarf að geta sýnt kynferðislega nærveru á sviði.

    • Þarf geta leikið, hreyft sig vel og sungið af innlifun.

    • Aldur: 25–50 ára

    • Raddsvið: Mezzo-sópran

    • Vinalegur Þjóðverji sem tekur enskutíma hjá Cliff og kynnir hann fyrir Kit-Kat klúbb. Smyglar peningum fyrir nasistaflokkinn í leyni.

    • Þarf að geta hreyft sig á sviði og dansa létt.

    • Aldur: 20-40

    • Raddsvið: Baritónn

Kabarett hópurinn

  • Danshópur og skemmtikraftar á Kit Kat-klúbbnum. Birtast bæði innan og utan veggja klúbbsins, oft í djörfum búningum og ögrandi sviðsetningu.

  • Gert er ráð fyrir að ráða inn 6-8 flytjendur í Kabarett hópinn.

  • Félagið gerir einnig ráð fyrir að geta ráðið inn 3-4 sjálfboðaliða fyrir minni hlutverk í sýningunni.

Leikhús ókunnuga fólksins hvetur alla áhugasama leikara, söngvara og dansara til að sækja um öll þau hlutverk sem þeim finnst spennandi óháð fyrri túlkunum á verkinu. Leikfélagið leggur áherslu á fjölbreytni í öllu flytjendavali.

Aðeins er tekið við umsóknum frá flytjendum 18 ára og eldri

Öllum umsóknum verður svarað en leikfélagið áskilur sér rétt til að bjóða aðeins hluta umsækjenda í prufur.

Prufuferlið

Þrep 1

Þriðjudagur - 8. júlí 2025

  • Dansprufur fyrir dansara (hópaskipt)
    Tímasetning: umsækjandi fær úthlutaðan tíma á bilinu
    17:00-20:00

  • Dansprufur fyrir aðra umsækjendur (hópaskipt) - hentar öllum
    Tímasetning:
    20:00-21:00

  • Hluti umsækjenda um leikhlutverk fær tíma fyrir einstaklingsprufur
    Tímasetning: umsækjandi fær úthlutuðan tíma á bilinu
    10:00-17:00

Fimmtudagur 10. júlí 2025

  • Hluti umsækjenda um leikhlutverk fær tíma fyrir einstaklingsprufur
    Tímasetning: umsækjandi fær úthlutuðan tíma á bilinu
    10:00-20:00

Þrep 2

Mánudagur 14. júlí 2025

  • Framhaldsprufur fyrir dansara

  • Framhaldsprufur fyrir leikara

    Tímasetning:
    Umsækjendur fá úthlutaða tíma á bilinu
    12:00-21:00

Prufunefnd skipa:
Bjartur Örn Bachmann - leikstjórn
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir - sviðshreyfingar
Sally Cowdin - dans
Þorsteinn Jónsson - tónlistarstjórn
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir er óháður aðili.

Efni sem þarf að undirbúa fyrir hvert þrep verður sent á umsækjendur þegar prufur nálgast.

Ef umsækjandi forfallast eða kemst ómögulega einhvern þessara daga/tíma af rökstuddri ástæðu hefur prufunefnd möguleika á að bjóða upp á ræfrænar prufur ef nefndin álítur það fýsilegan kost fyrir það tiltekna hlutverk sem sóst er eftir.

Öllum spurningum um prufurferlið er svarað á:
leikhusokunnugafolksins@gmail.com