Lífið er kabarett

Rafræn skráning í prufur fyrir Söngleikinn Kabarett.

Umsóknarfrestur er til og með 22. júní 2025

Leikhús ókunnuga fólksins leitar að leikurum, söngvurum og dönsurum til að taka þátt í Söngleiknum Kabarett (eftir Mastoff, Ebb og Kander) sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúskjallaranum í mars 2026. Kjallaranum öllum verður umbreytt í hinn alræmda Kit Kat klúbb til að skapa ógleymanlega söngleikjaupplifun fyrir áhorfendur.

Sýningin er fyrsta uppsetning Leikhúss ókunnuga fólksins sem var stofnað í þeim tilgangi að skapa ný tækifæri í sviðslistasenunni á Íslandi.

Prufur

Staðsetning:
Reykjavík, Þjóðleikhúsið, Dómhús - Lindargötu 2
Dagsetningar: 8., 10., og 14. júlí 2025

Æfingar og sýningar

Æfingastaður: Þjóðleikhúsið
Sýningastaður: Þjóðleikhúskjallarinn
Fyrra æfingatímabil
:
Október 2025
Seinna æfingatímabil:
Febrúar-mars 2026
Frumsýning: 20. mars 2026
Lokasýning: óákveðið
Tegund verkefnis:
Söngleikur / samstarfsverkefni
Þóknun: Láglaunað / hlutdeild af miðasölutekjum og umfram tekjur. (Með von um hærri þóknun þegar félagið fær styrkveitingar á tímabilinu)

Meðal þess sem við bjóðum upp á

  • Tækifæri til leika í einum skemmtilegasta og vinsælasta söngleik allra tíma ásamt því að koma fram í Þjóðleikhúsinu.

  • Skapandi samvinnu og sambönd við aðra listamenn og listræna stjórnendur.

  • Æfinga- og sýningaferli á fagmannlegum skala og í listrænu umhverfi.

  • Portrett-myndir teknar af Þjóðleikhúsinu.

  • Myndir og mynbönd af æfingaferli og sýningum til eigin notkunar.

  • Hlutdeild af miðasölutekjum. Sjá launastefnu hér að neðan.

Launastefna

Þátttakendur verkefnisins fá hlutdeild af miðasölutekjum sýningarinnar og er samið við hvern og einn flytjanda eftir álagi. Hluti af ferlinu er að halda fjáröflunarviðburði til að safna fjármunum og vekja athygli á sýningunni t.d. Karaoke, Pub-quiz o.s.frv. Ágóðinn rennur í uppsetningarkostnað sýningunnar og þóknun listamanna.

Félagið er í augnablikinu að falast eftir samstörfum og styrkjum frá fyrirtækjum, sjóðum, félögum og öðrum aðilum. Ef styrkir eða önnur fjármögnun fást verður þeim varið í sanngjarna greiðslur til listamanna en það er stefna félagsins að allar umfram tekjur renni beint til þeirra listamanna sem koma að sýningunni.

Leikhús ókunnuga fólksins hvetur alla áhugasama leikara, söngvara og dansara til að sækja um öll þau hlutverk sem þeim finnst spennandi óháð fyrri túlkunum á verkinu. Leikfélagið leggur áherslu á fjölbreytni í öllu flytjendavali.

Aðeins er tekið við umsóknum frá flytjendurm 18 ára og eldri

Öllum umsóknum verður svarað en leikfélagið áskilur sér rétt til að bjóða aðeins hluta umsækjenda í prufur.

Prufað verður fyrir eftirfarandi hlutverk

Leikhlutverk

    • Kynnir á Kit Kat-klúbbnum – kynsegin, lífsglaður og leyndardómsfullur. Heillandi og dáleiðandi flytjandi sem getur bæði tælt og skelft áhorfendur. Er óhræddur við nánd. Sameinar dökkan húmor, sinnuleysi, dónaskap og heillandi nærveru.

    • Þarf að vera með sterka sviðsframkomu, geta leikið, sungið (sumt á þýsku), hreyft sig vel og vera þægilegur með ögrandi/erotíska sviðsetningu.

    • Aldur: 25–50 ára

    • Raddsvið: Tenórre

  • *Aðeins er prufað fyrir understudy (varaflytjenda) fyrir þetta hlutverk.

    • Bresk kabarettsöngkona á Kit Kat-klúbbnum. Sérkennileg og duttlungafull. Á erfitt með að horfast í augu við myrkari hliðar lífsins og á slæma reynslu af samböndum.

    • Þarf að geta leikið, sungið og dansað vel. Verður að geta unnið með nánd á sviði og ögrandi sviðsetningu/kóreógrafíu.

    • Aldur: 20–35 ára

    • Raddsvið: Sópran

    • Bandarískur rithöfundur og enskukennari sem ferðast til Berlínar. Í gegnum gegnum verkið tekst hann á við flókið samband við sitt kynferðislega sjálf, pólitísk viðhorf og sköpunarþörfina.

    • Þarf að geta leikið og sungið vel, vera lipur á sviði og hreyfa sig nokkuð vel, ásamt því að geta unnið með nánd á sviði.

    • Aldur: 25–35 ára

    • Raddsvið: Baritónn

    • Leigusali sem leigir herbergi til Cliff, Sally og annarra. Einmana og búin að sætta sig við sitt hlutskipti, en þráir samt félagsskap.

    • Harðlynd í garð sumra, en horfir framhjá göllum annarra. Þarf að geta hreyft sig á sviði (léttur dans eins og vals), leikið og sungið vel. Þarf að geta unnið með nánd á sviði.

    • Aldur: Seint á fertugsaldri til 50s

    • Hreim: Þýskur

    • Raddsvið: D3 til A♭4

    • Gyðingur og eigandi ávaxtabúðar. Skotinn í Fräulein Schneider. Hreinn, saklaus og elskulegur – sorglega meðvitaðlaus um pólitíska spennu.

    • Þarf að geta leikið og sungið vel; hreyfa sig á sviði og dansa létt (t.d. vals); og geta unnið með nánd á sviði.

    • Aldur: Seint á fertugsaldri til 50s

    • Hreim: Þýskur

    • Raddsvið: G2 til F4

    • Vændiskona sem býr í húsi Fräulein Schneider. Djörf, skörp og kaldhæðin. Þarf að sýna kynferðislega nærveru og vald á sviði.

    • Þarf að leika, hreyfa sig vel og syngja á þýsku.

    • Aldur: 20–49 ára

    • Raddsvið: A♭ til F

  • Item description

Kabarett hópurinn

  • Danshópur og skemmtikraftar á Kit Kat-klúbbnum. Birtast bæði innan og utan veggja klúbbsins, oft í djörfum búningum og ögrandi sviðsetningu.

  • Gert er ráð fyrir að ráða inn 6-8 flytjendur í Kabarett hópinn.

  • Félagið gerir einnig ráð fyrir að geta ráðið inn 3-4 sjálfboðaliða fyrir minni hlutverk í sýningunni.

Prufuferlið

Þrep 1
Þriðjudagur - 8. júlí 2025

  • Dansprufur fyrir dansara (hópaskipt)

  • Dansprufur fyrir aðra umsækjendur (hópaskipt) - hentar öllum

  • Hluti umsækjenda um leikhlutverk fær tíma fyrir einstaklingsprufur

Fimmtudagur 10. júlí 2025

  • Hluti umsækjenda um leikhlutverk fær tíma fyrir einstaklingsprufur

Þrep 2
Mánudagur 14. júlí 2025

  • Framhaldsprufur fyrir dansara (hópaskipt)

  • Framhaldsprufur fyrir leikara (einstaklingsprufur)

Prufunefnd skipa:
Bjartur Örn Bachmann - leikstjórn
Júlía Kolbrún Sigurðardóttir - sviðshreyfingar
Sally Cowdin - dans
Þorsteinn Jónsson - tónlistarstjórn
Unnur Elísabet Gunnarsdóttir - óháður aðili

Efni sem þarf að undirbúa fyrir hvert þrep verður sent á umsækjendur þegar prufur nálgast.

Ef umsækjandi forfallast eða kemst ómögulega einhvern þessara daga af rökstuddri ástæðu hefur prufunefnd möguleika á að bjóða upp á ræfrænar prufur (s.s. innsendingu á vídjó og/eða netfund) ef nefndin álítur það fýsilegan kost fyrir það tiltekna hlutverk sem sóst er eftir .

Öllum spurningum um prufurferlið er svarað á:
leikhusokunnugafolksins@gmail.com

Skráning í prufur

Hefur þú áhuga á að vera flytjandi í einum vinsælasta söngleik allra tíma?
Vinsamlegast fylltu út skráningarformið hér að neðan!
Við hlökkum til að heyra frá þér!